
Milljarðaframkvæmdir fram undan í Snæfellsbæ
Fjölbreyttar framkvæmdir og fjárfestingar fyrir um 2,5 milljarða króna eru fyrirhugaðar í Snæfellsbæ á næstu fjórum árum. Áformin voru kynnt á opnum íbúafundi bæjarstjórnar í Félagsheimilinu Klifi sl. þriðjudag. Meðal stærstu verkefna eru uppbygging íbúða fyrir eldri borgara, framkvæmdir við hafnir sveitarfélagsins og endurbætur á þjónustu og innviðum.