Fréttir

true

Nokkur tjón í Grundarfirði vegna veðurhvellsins um helgina

Í suðaustan hvassviðri sem fylgdi tveimur lægðum um helgina varð nokkuð tjón í Grundarfirði enda getur vindáttin verið slæm þar. Meðal annars losnuðu þakplötur á íþróttahúsi bæjarins, hurð fauk upp á húsi fjölbrautaskólans, bátur á vagni fauk á hliðina og flutningavagn frá Ragnari og Ásgeiri lagðist sömuleiðis á hliðina. Björgunarsveitin Klakkur var kölluð út til…Lesa meira

true

Leikskólinn Hnoðraból er fjörutíu ára – afmælishátíð á morgun

Á morgun, þriðjudaginn 20. október, verður með pompi og prakt haldið upp á 40 ára afmæli Leikskólans Hnoðrabóls á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði. Skólinn hefur frá árinu 2020 verið til húsa í nýju og glæsilegu húsnæði sem er sambyggt grunnskólanum á staðnum. Mjög gott útisvæði er við skólann sem hannað er af Sigurbjörgu Ósk Áskelsdóttur hjá…Lesa meira

true

Gjaldskrár hækkar að hámarki um 2,5%

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt samhljóða að miða við að gjaldskrár sem lagðar eru á heimili í sveitarfélaginu hækki að hámarki um 2,5% á næsta ári. Markmiðið er að halda aftur af kostnaðarhækkunum heimilanna og leggja sitt af mörkum til að draga úr verðbólgu. Samþykktin er í samræmi við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem…Lesa meira

true

Rjúpnaveiðar mega hefjast á föstudaginn

Hér á Vesturlandi verður heimilt að veiða rjúpu frá og með föstudeginum 23. október. Samkvæmt ákvörðun Umhverfisráðuneytisins verður tímabil veiðanna frá föstudögum til og með þriðjudögum á tímabili sem ákveðið er sérstaklega innan hvers veiðisvæðis. Hér á Vesturlandi verður leyft að veiða á tímabilinu 23. október til 1. desember. Ítrekað er að sölubann er á…Lesa meira

true

Vegstubbur er olnbogabarn í kerfinu

Tveir afleggjarar liggja upp að höfuðstaðnum Reykholti í Borgarfirði. Sá sem er austan við gamla skólahúsið er ríflega hálfur kílómetri að lengd og endar við garðyrkjubýlið Varmaland. Þúsundir ferðamanna og gesta á hótelið aka þessa leið en þar er meðal annars styst að Snorralaug og hvernum Skriflu. Viðhaldi vegarins er hins vegar verulega ábótavant. Íbúar…Lesa meira

true

Kenndi bridds á Smiðjuhelgi í skólanum

Á föstudag og laugardag tóku nemendur á unglingastigi Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum þátt í Smiðjuhelgi. Hópurinn velur sér viðfangsefni en smiðjurnar snerust að þessu sinni um körfubolta, ljósmyndun, útivist, landbúnað og bridds. Nemendur frá Dölum, Ströndum og Reykhólum komu í heimsókn og tóku þátt í smiðjuhelginni með unglingastigi GBF. Byrjað er síðdegis á föstudegi, gist…Lesa meira

true

Undirbúningur hafinn að nýju neyðar- og öryggisfjarskiptakerfi

Vinna við undirbúning næstu kynslóðar sameiginlegs fjarskiptakerfis fyrir öryggis- og neyðarþjónustu á Íslandi er hafinn. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra greindi frá þessu í opnunarávarpi sínu á ráðstefnunni Björgun 2026 í Hörpu fyrir helgi.  Fyrirtækið Korda leiðir vinnuna og er tæknilegur undirbúningur hafinn. Nýtt öryggis- og neyðarfjarskiptakerfi sem hefur vinnuheitið FÖNix mun byggja á nýjustu fjarskiptatækni…Lesa meira

true

Suðvestan hvassviðri í dag

Í dag verður hvassviðri og úrkoma um nær allt land. Gular viðvaranir taka gildi um vestanvert landið eftir hádegi og gilda til klukkan 21 í kvöld. Með hvassri suðvestanátt í dag má reikna með staðbundnum vindhviðum svo sem á norðanverðu Snæfellsnesi eftir kl. 14 og fram á kvöldið. Vindhraði verður víða 18-23 metrar á sekúndu.…Lesa meira

true

Öruggur sigur ÍA á Snæfelli í Vesturlandsslag

Skagamenn höfðu mikla yfirburði þegar þeir tóku á móti Snæfelli í 1. deild karla í körfuknattleik í AvAir höllinni á föstudagskvöld. ÍA sigraði 113:81 eftir að hafa lagt grunninn að sigrinum strax í fyrsta leikhluta. Alls fylgdust 237 áhorfendur með viðureigninni. Heimamenn byrjuðu af miklum krafti og unnu fyrsta leikhlutann 33:15. Jafnræði var með liðunum…Lesa meira

true

Leikskólagjöld munu lækka um helming í Snæfellsbæ

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar hefur samþykkt að lækka dvalargjöld í leikskólum sveitarfélagsins um 50% frá og með næstu áramótum. Með ákvörðuninni vill sveitarfélagið létta fjárhagslega byrði barnafjölskyldna og stuðla að fjölskylduvænna samfélagi. Ákvörðunin var tekin á fundi bæjarstjórnar 13. október að tillögu forseta bæjarstjórnar. Hún er í samræmi við áherslur D-listans um fjölskylduvænt samfélag sem kynntar voru…Lesa meira