Fréttir

true

Rjúpnaveiðar mega hefjast á föstudaginn

Hér á Vesturlandi verður heimilt að veiða rjúpu frá og með föstudeginum 23. október. Samkvæmt ákvörðun Umhverfisráðuneytisins verður tímabil veiðanna frá föstudögum til og með þriðjudögum á tímabili sem ákveðið er sérstaklega innan hvers veiðisvæðis. Hér á Vesturlandi verður leyft að veiða á tímabilinu 23. október til 1. desember. Ítrekað er að sölubann er á…Lesa meira

true

Vegstubbur er olnbogabarn í kerfinu

Tveir afleggjarar liggja upp að höfuðstaðnum Reykholti í Borgarfirði. Sá sem er austan við gamla skólahúsið er ríflega hálfur kílómetri að lengd og endar við garðyrkjubýlið Varmaland. Þúsundir ferðamanna og gesta á hótelið aka þessa leið en þar er meðal annars styst að Snorralaug og hvernum Skriflu. Viðhaldi vegarins er hins vegar verulega ábótavant. Íbúar…Lesa meira

true

Kenndi bridds á Smiðjuhelgi í skólanum

Á föstudag og laugardag tóku nemendur á unglingastigi Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum þátt í Smiðjuhelgi. Hópurinn velur sér viðfangsefni en smiðjurnar snerust að þessu sinni um körfubolta, ljósmyndun, útivist, landbúnað og bridds. Nemendur frá Dölum, Ströndum og Reykhólum komu í heimsókn og tóku þátt í smiðjuhelginni með unglingastigi GBF. Byrjað er síðdegis á föstudegi, gist…Lesa meira

true

Undirbúningur hafinn að nýju neyðar- og öryggisfjarskiptakerfi

Vinna við undirbúning næstu kynslóðar sameiginlegs fjarskiptakerfis fyrir öryggis- og neyðarþjónustu á Íslandi er hafinn. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra greindi frá þessu í opnunarávarpi sínu á ráðstefnunni Björgun 2026 í Hörpu fyrir helgi.  Fyrirtækið Korda leiðir vinnuna og er tæknilegur undirbúningur hafinn. Nýtt öryggis- og neyðarfjarskiptakerfi sem hefur vinnuheitið FÖNix mun byggja á nýjustu fjarskiptatækni…Lesa meira

true

Suðvestan hvassviðri í dag

Í dag verður hvassviðri og úrkoma um nær allt land. Gular viðvaranir taka gildi um vestanvert landið eftir hádegi og gilda til klukkan 21 í kvöld. Með hvassri suðvestanátt í dag má reikna með staðbundnum vindhviðum svo sem á norðanverðu Snæfellsnesi eftir kl. 14 og fram á kvöldið. Vindhraði verður víða 18-23 metrar á sekúndu.…Lesa meira

true

Öruggur sigur ÍA á Snæfelli í Vesturlandsslag

Skagamenn höfðu mikla yfirburði þegar þeir tóku á móti Snæfelli í 1. deild karla í körfuknattleik í AvAir höllinni á föstudagskvöld. ÍA sigraði 113:81 eftir að hafa lagt grunninn að sigrinum strax í fyrsta leikhluta. Alls fylgdust 237 áhorfendur með viðureigninni. Heimamenn byrjuðu af miklum krafti og unnu fyrsta leikhlutann 33:15. Jafnræði var með liðunum…Lesa meira

true

Leikskólagjöld munu lækka um helming í Snæfellsbæ

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar hefur samþykkt að lækka dvalargjöld í leikskólum sveitarfélagsins um 50% frá og með næstu áramótum. Með ákvörðuninni vill sveitarfélagið létta fjárhagslega byrði barnafjölskyldna og stuðla að fjölskylduvænna samfélagi. Ákvörðunin var tekin á fundi bæjarstjórnar 13. október að tillögu forseta bæjarstjórnar. Hún er í samræmi við áherslur D-listans um fjölskylduvænt samfélag sem kynntar voru…Lesa meira

true

Ríkið og Sjóvá standa áfram með Landsbjörgu

Við setningu Björgunar 26 í síðustu viku, alþjóðlegrar ráðstefnu um björgunarmál, var skrifað undir viljayfirlýsingu íslenska ríkisins og Slysavarnafélagsins Landsbjargar um áframhaldandi stuðning við endurnýjun björgunarskipaflotans við strendur Íslands. Ríkið hefur stutt myndarlega við verkefnið fram til þessa, með 50% framlagi í hvert skip. Fyrir lá viljayfirlýsing um aðkomu ríkisins að tíu skipum og nú…Lesa meira

true

Hefja byggingu þriggja einbýlishúsa

Í gær var tekin fyrsta skóflustungan að byggingu þriggja einbýlishúsa við Skógarlund 30, 32 og 34 á Akranesi. Það var Fannar Helgason framkvæmdastjóri Þróttar sem sjálfur steig upp í gröfuna og hóf jarðvegsskipti undir fyrsta einbýlishúsið við Skógarlund 30. Byggingaraðili er Trésmiðjan Akur ehf. Ágætt útsýni er frá byggingarstað; stutt í golfvöllinn og fagurt útsýni…Lesa meira

true

Heiðruð fyrir farsæl störf að sveitarstjórnarmálum

Á haustþingi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, sem haldið var á Varmalandi í Borgarfirði í síðustu viku, var fjórum einstaklingum veitt viðurkenning fyrir framlag sitt til samfélags og byggðar. Þetta voru þau Einar Brandsson á Akranesi, Pétur Davíðsson í Skorradal, Björg Ágústsdóttir í Grundarfirði og Hrefna Bryndís Jónsdóttir í Borgarfirði. „Heiðursviðurkenningarnar eru þakklætisvottur fyrir áralanga þjónustu,…Lesa meira