Fréttir

true

Viktor Elvar tekur við framkvæmdastjórn Leynis

Viktor Elvar Viktorsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis á Akranesi og tekur við starfinu á haustmánuðum, nánar tiltekið 18. nóvember. Hann tekur við af Rakel Óskarsdóttur sem hefur sagt starfi sínu lausu. Viktor Elvar er tölvunarfræðingur að mennt og þekkir starfsemi Leynis vel. Hann hefur áður gegnt bæði formennsku og setið í stjórn félagsins…Lesa meira

true

Haldið áfram í kvöld að malbika á hringveginum við Baulu

Í kvöld er stefnt á að malbika hluta Vesturlandsvegar frá Gljúfurá og áleiðis upp að Munaðarnesi, framhjá söluskálanum Baulu í Stafholtstungum. Framkvæmdir hófust í gærkvöldi. Umferð verður stýrt í hollum í gegnum vinnusvæðið af starfsmönnum verktakafyrirtækisins. Því má búast við einhverjum umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 til kl. 07:00. „Vegfarendur eru…Lesa meira

true

Fyrirlestur í kvöld um séra Björn Magnússon á Borg

Snorrastofa í Reykholti mun í kvöld, þriðjudaginn 25. ágúst, bjóða upp á fyrirlestur Dr. Maríu Guðrúnar Ágústsdóttur sem nefnist: „Hagur heildarinnar og hugarfar samúðar. Um séra Björn Magnússon á Borg, síðar prófessor“. Dagskráin verður í bókhlöðu Snorrastofu og hefst kl. 20. Um er að ræða þátt í viðburðaröðinni Fyrirlestrar í héraði. Björn Magnússon (1904-1997) var…Lesa meira

true

Góð stemning en fleiri hefðu mátt mæta

Síðastliðinn sunnudag var Beint frá býli dagurinn haldinn á sjö stöðum á landinu. Matar- og handverksmarkaður var haldinn á Laugum í Sælingsdal í umsjón framleiðenda í Ásgarði. Það voru heimavinnsluaðilar og smáframleiðendur af Vesturlandi sem kynntu og seldu ýmsan varning. Þá kom Dýragarðurinn á Hólum á staðinn, sundlaugin var opin, veitingar til sölu og hægt…Lesa meira

true

Vel heppnaðir tónleikar og frábær skemmtun

Minningarsjóður sem stofnaður var í minningu Heimis Klemenzsonar hélt síðastliðið föstudagskvöld tónaveislu í Hjálmakletti. Í upphafi kynnti Jónína Erna Arnardóttir, ein þeirra er skipa stjórn sjóðsins, dagskrá kvöldsins. Segja má að hvert og eitt atriði hafi verið einstakt. Í upphafi söng frábær barnakór, Æskukórinn, undir stjórn Theodóru Þorsteinsdóttur. Síðan rak hvert atriði annað. Frænkur Heimis…Lesa meira

true

Þurfa að leggja nýja klæðningu á hluta vegarins

„Nauðsynlegt er að ráðast í lagfæringar á hluta Snæfellsnesvegar við Kaldármela þar sem nýlagt klæðingarlag skemmdist skömmu eftir útlögn sl. fimmtudag. Verktaki mun fræsa upp klæðingarlagið á kaflanum og leggja það að nýju við fyrsta tækifæri,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Fram kemur að rannsóknir sem gerðar hafa verið staðfesti að skemmdirnar séu bundnar við…Lesa meira

true

Álfheiður skiptir um vettvang

Álfheiður Ágústsdóttir, sem undanfarin sex ár hefur gegnt starfi forstjóra Elkem Ísland á Grundartanga, hefur verið ráðin aðstoðarforstjóri Travel Connect og tekur til starfa þar í september. Fjármála- og innkaupastarfsemi félagsins fellur undir hennar svið, sem og dótturfélög samstæðunnar. „Ráðning Álfheiðar er liður í að styrkja stjórnendateymi Travel Connect fyrir næsta vaxtarskeið félagsins. Hún tekur…Lesa meira

true

Skipuð í nýtt embætti sýslumanns fyrir landið

Kristín Þórðardóttir hefur verið skipuð í nýtt embætti sýslumanns. Hún tók við stöðunni í síðustu viku. Frumvarp dómsmálaráðherra um sameinað embætti sýslumanns var samþykkt á Alþingi í febrúar síðastliðnum. Með lögunum verða núverandi níu sýslumannsembætti sameinuð í eitt embætti sýslumanns frá og með 1. janúar næstkomandi. Þá verður landið eitt umdæmi með starfsstöðvar um land…Lesa meira

true

Kaffisala til styrktar uppbyggingu í Ölveri – myndasyrpa

Kaffisala fór fram í sumarbúðunum Ölveri um helgina þar sem safnað var fé til áframhaldandi uppbyggingar á staðnum. Meðal verkefna sem stefnt er að eru bygging íþróttahúss og frekari lagning og endurbætur göngustíga í skóglendinu umhverfis sumarbúðirnar. Náttúran skartaði sínu fegursta og veðrið lék við gesti þegar blaðamann Skessuhorns bar að garði. Og veittar velgjörðir…Lesa meira

true

Skráning í yngri flokka ÍA

Skráning í knattspyrnustarf yngri flokka Knattspyrnufélags ÍA hefst í dag klukkan 16 þegar opnað verður fyrir skráningar í Abler. Æfingagjöldin gilda fyrir tímabilið 1. september til 31. desember en æfingar standa til 13. desember þegar jólafrí tekur við. Skráningu lýkur 1. október kl. 16 en eftir þann tíma þurfa nýir iðkendur að hafa samband við…Lesa meira