Ný mynd sem sýnir skemmdir í nýlagðri klæðningu. Ljósm. aðsend

Þurfa að leggja nýja klæðningu á hluta vegarins

„Nauðsynlegt er að ráðast í lagfæringar á hluta Snæfellsnesvegar við Kaldármela þar sem nýlagt klæðingarlag skemmdist skömmu eftir útlögn sl. fimmtudag. Verktaki mun fræsa upp klæðingarlagið á kaflanum og leggja það að nýju við fyrsta tækifæri,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Fram kemur að rannsóknir sem gerðar hafa verið staðfesti að skemmdirnar séu bundnar við klæðningarlagið. Styrktar- og burðarlög vegarins eru óskemmd.

Borgarverk hefur í sumar unnið að endurbyggingu vegarins frá Brúarhrauni að Hraunsmúla á sex kílómetra kafla. Lögð voru ný styrktar- og burðarlög, vegurinn breikkaður í samræmi við núverandi staðla og vegurinn að endingu lagður klæðningu. Fram kemur hjá Vegagerðinni að verkið er nokkuð á eftir upphaflegri áætlun, meðal annars vegna breytinga sem gera þurfti á hönnun eftir að framkvæmdir hófust.

Fimmtudaginn 20. ágúst var neðra lag klæðningar lagt á um eins kílómetra kafla sem liggur um mitt framkvæmdasvæðið. Veðurspár gerðu ráð fyrir þurru veðri sólarhring eftir útlögn og stóð til að sópa umframefni af veginum daginn eftir. Veður breyttist hins vegar fyrr en spár gerðu ráð fyrir og mikil og viðvarandi rigning kom í veg fyrir að hægt væri að sópa kaflann. „Ef ekki næst að sópa getur laust steinefni skemmt yfirborð vegar. Samspil þessara aðstæðna og mikillar og þungrar umferðar um veginn varð til þess að klæðningarlagið skemmdist verulega. Því er nauðsynlegt að fjarlægja það og leggja nýtt. Vegagerðin og verktaki vinna nú að útfærslu næstu skrefa. Skemmda klæðningarlagið verður fræst upp eins fljótt og aðstæður leyfa og kaflinn lagfærður. Nánari upplýsingar um tímasetningu munu liggja fyrir þegar framkvæmdaáætlun hefur verið uppfærð,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.