
Fyrirlestur í kvöld um séra Björn Magnússon á Borg
Snorrastofa í Reykholti mun í kvöld, þriðjudaginn 25. ágúst, bjóða upp á fyrirlestur Dr. Maríu Guðrúnar Ágústsdóttur sem nefnist: „Hagur heildarinnar og hugarfar samúðar. Um séra Björn Magnússon á Borg, síðar prófessor“. Dagskráin verður í bókhlöðu Snorrastofu og hefst kl. 20. Um er að ræða þátt í viðburðaröðinni Fyrirlestrar í héraði.
Björn Magnússon (1904-1997) var sóknarprestur á Borg á Mýrum frá árinu 1929 og prófastur Mýraprófastsdæmis uns hann tók við stöðu guðfræðiprófessors við Háskóla Íslands árið 1945. Eftir hann liggja fjölbreytt rit á sviði guðfræði og ættfræði. Í fyrirlestrinum gerir María grein fyrir lífi Björns og störfum með sérstakri áherslu á siðfræði hans sem fulltrúa þriðju kynslóðar frjálslyndra guðfræðinga á Íslandi. Dr. María er prófastur og prestur í Reykholti.
Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis. Fyrirlesturinn er styrktur af Borgarbyggð og Sóknaráætlun Vesturlands.
