Hróðmar Halldórsson formaður Leynis og Viktor Elvar Viktorsson nýráðinn framkvæmdastjóri Leynis við undirritun ráðningarsamningsins á dögunum. Ljósm. Leynir.

Viktor Elvar tekur við framkvæmdastjórn Leynis

Viktor Elvar Viktorsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis á Akranesi og tekur við starfinu á haustmánuðum, nánar tiltekið 18. nóvember. Hann tekur við af Rakel Óskarsdóttur sem hefur sagt starfi sínu lausu.