Árleg kaffisala Ölvers var afar vel sótt og ekki rými fyrir alla inni. Það kom ekki að sök þar sem að veður var með fádæmum gott. Ljósm. óhk

Kaffisala til styrktar uppbyggingu í Ölveri – myndasyrpa

Kaffisala fór fram í sumarbúðunum Ölveri um helgina þar sem safnað var fé til áframhaldandi uppbyggingar á staðnum. Meðal verkefna sem stefnt er að eru bygging íþróttahúss og frekari lagning og endurbætur göngustíga í skóglendinu umhverfis sumarbúðirnar. Náttúran skartaði sínu fegursta og veðrið lék við gesti þegar blaðamann Skessuhorns bar að garði. Og veittar velgjörðir voru ekki af verra taginu.