
Haldið áfram í kvöld að malbika á hringveginum við Baulu
Í kvöld er stefnt á að malbika hluta Vesturlandsvegar frá Gljúfurá og áleiðis upp að Munaðarnesi, framhjá söluskálanum Baulu í Stafholtstungum. Framkvæmdir hófust í gærkvöldi. Umferð verður stýrt í hollum í gegnum vinnusvæðið af starfsmönnum verktakafyrirtækisins. Því má búast við einhverjum umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 til kl. 07:00. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum,“ segir í tilkynningu frá Colas.
Töluvert var um bikblæðingar á þessum kafla hringvegarins síðasta sumar en nú verður ráðist í malbikun á honum í því skyni að fyrirbyggja slíkar blæðingar og bæta ástand vegarins. Alla jafnan er bundna slitlagið á Hringveginum á þessu svæði klæðing. Vegagerðin stefnir jafnframt að því að malbika fleiri klæðingarkafla á Hringveginum (1) frá Borgarnesi á næstu árum. Framkvæmdin við Baulu er liður í áframhaldandi uppbygginu og viðhaldi vegarins á þessum hluta Hringvegarins (1).