Álfheiður Ágústsdóttir.

Álfheiður skiptir um vettvang

Álfheiður Ágústsdóttir, sem undanfarin sex ár hefur gegnt starfi forstjóra Elkem Ísland á Grundartanga, hefur verið ráðin aðstoðarforstjóri Travel Connect og tekur til starfa þar í september. Fjármála- og innkaupastarfsemi félagsins fellur undir hennar svið, sem og dótturfélög samstæðunnar. „Ráðning Álfheiðar er liður í að styrkja stjórnendateymi Travel Connect fyrir næsta vaxtarskeið félagsins. Hún tekur við starfi aðstoðarforstjóra af Davíð Harðarsyni sem hefur tekið við sem stjórnarformaður félagsins og mun í því hlutverki leiða ytri vöxt samstæðunnar með áherslu á áframhaldandi alþjóðlega sókn og þróun,“ segir í tilkynningu.