
Svipmyndir frá markaði Beint frá býli. Ljósm. þeg
Góð stemning en fleiri hefðu mátt mæta
Síðastliðinn sunnudag var Beint frá býli dagurinn haldinn á sjö stöðum á landinu. Matar- og handverksmarkaður var haldinn á Laugum í Sælingsdal í umsjón framleiðenda í Ásgarði. Það voru heimavinnsluaðilar og smáframleiðendur af Vesturlandi sem kynntu og seldu ýmsan varning. Þá kom Dýragarðurinn á Hólum á staðinn, sundlaugin var opin, veitingar til sölu og hægt var að fara með ís í heita pottinn. Að sögn Þorgríms Einars Guðbjartssonar á Erpsstöðum var góð stemning á svæðinu, en gestir að þessu sinni heldur færri en síðustu ár. Hátt í 200 manns gerðu sér ferð að Laugum af þessu tilefni.