Skráning í yngri flokka ÍA

Skráning í knattspyrnustarf yngri flokka Knattspyrnufélags ÍA hefst í dag klukkan 16 þegar opnað verður fyrir skráningar í Abler. Æfingagjöldin gilda fyrir tímabilið 1. september til 31. desember en æfingar standa til 13. desember þegar jólafrí tekur við. Skráningu lýkur 1. október kl. 16 en eftir þann tíma þurfa nýir iðkendur að hafa samband við yfirþjálfara eða skrifstofu félagsins.