Fréttir

true

Opið hús í Samkomuhúsinu í dag

Gengið hefur verið frá samkomulagi milli Sveitarfélagsins Stykkishólms og Aftanskins, félags eldri borgara í Stykkishólmi, um afnot af Samkomuhúsinu við Aðalgötu 6. Áður hefur verið fjallað um aðdraganda samningsins í Skessuhorni. Aftanskin mun nýta húsnæðið undir tómstundastarf svo sem smíðar og fleira. Einnig hefur félagið heimilað Golfklúbbnum Mostra að nýta tímabundið hluta af húsnæðinu fyrir…Lesa meira

true

Áheitasöfnun í MB og styrkja Sorgarmiðstöðina

Nemendafélag Menntaskóla Borgarfjaraðr stendur fyrir áheitaviku þessa dagana. „Við nemendur og starfsfólk viljum hvetja sem flesta til að taka þátt í þessu með okkur og heita á okkur, ekki vantar skemmtilegar hugmyndir,“ segir Ernir Daði Arnbergz formaður nemendafélagsins í samtali við Skessuhorn. „Við í nemendafélaginu ákváðum að þetta árið myndi allur ágóði af góðgerðaviku renna…Lesa meira

true

Ráðgefandi könnun hafin um nafn á sameinuðu sveitarfélagi

Ráðgefandi íbúakönnum um nafn á sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps hófst í gær og stendur til og með 27. apríl nk. Allir íbúar með lögheimili í sveitarfélögunum Borgarbyggð og Skorradalshreppi, 16 ára og eldri, geta tekið þátt í könnuninni í gegnum þjónustugátt Borgarbyggðar. Til að komast þar inn þarf að hafa rafræn skilríki. Valið er…Lesa meira

true

Líkur á að nýtt jarðhitasvæði sé fundið á Hellisheiði

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, var gestur í Býtinu á Bylgjunni í morgun. Þar upplýsti hann að Orkuveitan hafi fundið nýtt jarðhitasvæði á Meitlum á Hellisheiði. Þetta eigi þó enn eftir að staðfesta með þriðju borholu en ef þær rannsóknir staðfesta gruninn segir Sævar Freyr þetta vera stórkostleg tíðindi. Hann segir Orkuveituna hafa sett sér…Lesa meira

true

Guðrún vann grímutöltið í búningi slátrara

Grímutölt Borgfirðings fór fram síðastliðinn laugardag í Faxaborg. Var mótið einungis ætlað félagsmönnum Borgfirðings. Margir býsna flottir búningar sáust svífa yfir gólf reiðhallarinnar þetta kvöld. Veitt voru verðlaun fyrir besta búninginn og var það Guðrún Fjeldsted sem vann til þeirra verðlauna, en hún var í gervi slátrara. Bentson ehf styrkti mótið meðal annars með því…Lesa meira

true

Bók um störf lögreglu í framlínu

Út er komin bókin „Í framlínu – lögreglumenn segja frá“ og fæst hún í helstu bókaverslunum auk þess sem hana má panta á vefsíðu útgáfunnar, https://blakkur.org/logreglustarfid/ Höfundur er Júlíus Ó. Einarsson þjóðfræðingur, sem jafnframt er fyrrverandi lögreglumaður. Í bókinni lýsa tugir lögreglumanna starfi sínu, einstökum verkefnum og upplifunum á meira en 250 blaðsíðum. Einnig eru…Lesa meira

true

Björgunarskipið fær nafnið Kristrún á Bjargi

Björgunarskipið Gísli Jóns frá Ísafirði, sem Björgunarfélag Akraness, keypti fyrr í vetur hefur nú fengið nýtt nafn; Kristrún á Bjargi. Björgunarfélag Akraness vildi minnast þessarar öflugu konu. Á síðu félagsins segir um nafngift skipsins: „Þessi öfluga kona, Kristrún Hallgrímsdóttir, fæddist á Veiðilæk í Þverárhlíð í Borgarfirði 1. október 1833. Hún flutti á Akranes 12 ára…Lesa meira

true

Aðstoðarskólameistari á tímamótum

Rætt við Lilju Sesselju Ólafsdóttur sem lætur af störfum síðar á árinu Menntaskóli Borgarfjarðar er einkarekinn framhaldsskóli með aðsetur í Borgarnesi. Hann er eini framhaldsskólinn í Borgarfirði og þjónar nokkuð stóru svæði, en fyrir eru tveir háskólar í sveitarfélaginu, Háskólinn á Bifröst og Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri. Skólinn var formlega stofnaður 4. maí 2006. Fyrsta…Lesa meira

true

Lokakvöldið í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum

Í gærkvöldi var keppt í tveimur greinum á lokadegi Vesturlandsdeildarinnar; í tölti T1 og skeiði í gegn um Faxaborg. Mikil spenna var í loftinu en mjög mjótt var á milli efstu knapa í einstaklingskeppninni og efstu liða í liðakeppni. 30 knapar voru skráðir til leiks í tölti T1 og 26 í skeiðinu. Fór keppnin vel…Lesa meira

true

Línur í framboðsmálum skýrðust fyrir helgi

Frestur til að skila inn framboðum til sveitarstjórna rann út á hádegi á föstudaginn. Samkvæmt lögum er viðhaft persónukjör berist ekki framboðslisti. Sú verður raunin í Dalabyggð. Þar eru fjórir fyrrum sveitarstjórnarfulltrúar sem geta skv. lögum skorast undan endurkjöri, en þau sem nýttu sér það eru Eyjólfur Ingvi Bjarnason, Halla Sigríður Steinólfsdóttir, Skúli Hreinn Guðbjörnsson…Lesa meira