Bók um störf lögreglu í framlínu

Út er komin bókin „Í framlínu - lögreglumenn segja frá“ og fæst hún í helstu bókaverslunum auk þess sem hana má panta á vefsíðu útgáfunnar, https://blakkur.org/logreglustarfid/ Höfundur er Júlíus Ó. Einarsson þjóðfræðingur, sem jafnframt er fyrrverandi lögreglumaður. Í bókinni lýsa tugir lögreglumanna starfi sínu, einstökum verkefnum og upplifunum á meira en 250 blaðsíðum. Einnig eru þar hugleiðingar um eðli lögreglustarfins og áhrif þess á þá sem því sinna og þeirra nánustu. „Viðmælendur í bókinni eru af báðum kynjum, öllum aldri, flestum starfsstigum og hvarvetna af landinu. Viðlíka innsýn hefur ekki áður verið gefin í lögreglustarfið hérlendis. Um leið er bókin öðrum þræði sögulegt yfirlit löggæslu síðustu fjörutíu ára,“ segir í tilkynningu.