Áheitasöfnun í MB og styrkja Sorgarmiðstöðina

Nemendafélag Menntaskóla Borgarfjaraðr stendur fyrir áheitaviku þessa dagana. „Við nemendur og starfsfólk viljum hvetja sem flesta til að taka þátt í þessu með okkur og heita á okkur, ekki vantar skemmtilegar hugmyndir,“ segir Ernir Daði Arnbergz formaður nemendafélagsins í samtali við Skessuhorn. „Við í nemendafélaginu ákváðum að þetta árið myndi allur ágóði af góðgerðaviku renna til Sorgarmiðstöðvarinnar. Það er málefni sem stendur okkur í MB mjög nærri og mikilvægt að geta stutt við það starf.“

Ernir Daði segir að fyrirkomulag áheita sé þannig að nemendur skólans og starfsfólk láta heita á sig til ákveðinna skemmtilegra athafna sem vissulega er allt í gamni gert. „Við skorum á fyrirtæki, einstaklinga eða starfsmannahópa til að styðja við gott málefni sem kemur okkur öllum við. Fólk fer bara inn á Facebook,- eða Instragram reikning skólans. Það eru einhver þrjátíu verkefni í gangi og hægt að heita á hópana fram á næsta mánudag.“ Ernir Daði segir að nú þegar séu margir hópar búnir að ná söfnunarmarkmiði sínu, en ekki þó allir.