
Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj
Ráðgefandi könnun hafin um nafn á sameinuðu sveitarfélagi
Ráðgefandi íbúakönnum um nafn á sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps hófst í gær og stendur til og með 27. apríl nk. Allir íbúar með lögheimili í sveitarfélögunum Borgarbyggð og Skorradalshreppi, 16 ára og eldri, geta tekið þátt í könnuninni í gegnum þjónustugátt Borgarbyggðar. Til að komast þar inn þarf að hafa rafræn skilríki.