Línur í framboðsmálum skýrðust fyrir helgi

Frestur til að skila inn framboðum til sveitarstjórna rann út á hádegi á föstudaginn. Samkvæmt lögum er viðhaft persónukjör berist ekki framboðslisti. Sú verður raunin í Dalabyggð. Þar eru fjórir fyrrum sveitarstjórnarfulltrúar sem geta skv. lögum skorast undan endurkjöri, en þau sem nýttu sér það eru Eyjólfur Ingvi Bjarnason, Halla Sigríður Steinólfsdóttir, Skúli Hreinn Guðbjörnsson og Þuríður Jóney Sigurðardóttir. Í Eyja- og Miklaholtshreppi barst sömuleiðis ekki framboðslisti og verður því viðhaft persónukjör. Sigurjörg Ottesen oddviti Eyja- og Miklaholtshrepps staðfestir í samtali við Skessuhorn að enginn núverandi fulltrúa í sveitarstjórn hafi beðist undan endurkjöri. Því verða allir íbúar á kosningaaldri í kjöri við kosningarnar í vor.