Björgunarskipið fær nafnið Kristrún á Bjargi

Björgunarskipið Gísli Jóns frá Ísafirði, sem Björgunarfélag Akraness, keypti fyrr í vetur hefur nú fengið nýtt nafn; Kristrún á Bjargi. Björgunarfélag Akraness vildi minnast þessarar öflugu konu. Á síðu félagsins segir um nafngift skipsins:

„Þessi öfluga kona, Kristrún Hallgrímsdóttir, fæddist á Veiðilæk í Norðurárdal í Borgarfirði 1. október 1833. Hún flutti á Akranes 12 ára gömul, þá munaðarlaus. Eignaðist með manni sínum, Tómasi Erlendssyni, 17 börn. Bjuggu þau á Bjargi sem var staðsett við miðja Laugarbraut á Akranesi til dagsins í dag.“ Kristrún var alltaf þekkt meðal heimafólks á Akranesi sem Kristrún á Bjargi. Hún bar uppi stórt og mannmargt heimili, skaut skjólshúsi yfir gesti og var í útgerð. „Kristrún er einna þekktust fyrir framlag sitt til samfélagsins vegna mikillar gestrisni og fyrir að hafa skotið skjólshúsi yfir sjúklinga sem þörfnuðust læknishjálpar. Var hún þar með einn af helstu frumkvöðlum þess að sjúkraskýli og seinna sjúkrahús var reist á Akranesi.“ Saga líknandi handa var sýning sem sett var upp á Byggðasafninu í Görðum og fjallaði að hluta til um hennar framlag og sjúkraskýlið á Bjargi.

Birna Björnsdóttir gjaldkeri Björgunarfélags Akraness tekur hér á móti gjöf sem er ljósmynd af Kristrúnu Hallgrímsdóttur úr hendi Kristrúnar Valtýsdóttur. Henni var gefin myndin af langömmu sinni þegar hún var tíu ára gömul. Ljósm. BA

Stór ættbogi

Mjög fjölmenn ætt er frá þeim hjónum á Bjargi komin. Fimm af börnum þeirra dóu ung. Átta þeirra eignuðust börn. Öll þessara átta, utan eitt, voru annað hvort sjómenn eða sjómannskonur. Þannig að tengslin við sjó hafa alltaf verið sterk.

„Þegar kom að því að velja nafn á skipið, kom nafn Kristrúnar Hallgrímsdóttur fljótlega sterklega til greina. Kona sem samfélagið þekkti fyrir mikla fórnfýsi og hafði oft á orði „að Guð launaði það sem launa þarf.“ Hún var fremst í flokki þeirra sem lagði hart að sér til þess að samfélagið á Akranesi á þessum árum næði í gegnum þær hörmungar sem sjávarháski, harðindi og pestir lögðu á það. Það er því mikill heiður fyrir Björgunarfélag Akraness að fá að nota nafn þessarar heiðurskonu á björgunarskipið og að halda uppi hennar merki við að sinna samfélaginu til sjós og lands,“ segir Ásgeir Örn Kristinsson björgunarsveitarmaður.

Ásgeir segir að gott samtal hafi verið tekið við þau ættmenni sem næst voru Björgunarfélaginu. „Það samtal leiddi til fjölmenns fundar í húsnæði Björgunarfélagsins þar sem góður hópur afkomenda Kristrúnar Hallgrímsdóttur kom og fræddi okkur, félaga björgunarfélagsins, um formóður sína. Við það tækifæri var okkur færð mynd af Kristrúnu. Þessi mynd kemur upphaflega af vegg húss sem stóð við núverandi Akratorg og hét þá Skuldartorg. Húsið sem myndin var í, og var í eigu Benedikts sonar Kristrúnar, hét einmitt Skuld. Frá honum er komin svonefnd Skuldarætt sem er einn leggur afkomenda Kristrúnar Hallgrímsdóttur. Það er skemmtileg tilviljun að skipið sem núna ber nafn Kristrúnar, hét einmitt Skuld þegar björgunarskipið var gert út af norsku björgunarsamtökunum Redningsselskapet, þar sem skipið var í notkun frá 1990-2018. Hét skipið þá Skuld, nefnt í höfuðið á norsku tryggingafélagi sem gaf norsku sjóbjörgunarsamtökunum það. Þegar það var svo selt til Björgunarbátasjóðs Vestfjarða á Ísafirði, fékk þar nafnið Gísli Jóns.

Formleg vígsla á skipinu verður svo á Sjómannadaginn, sunnudaginn 7. júní.

Loks segir á heimasíðu Björgunarfélags Akraness að framundan er þjálfun áhafna á björgunarskipinu. „Það er margt sem þarf að læra. Fumlaus og örugg handtök geta skipt öllu við erfiðar aðstæður þannig að liklegt er að íbúar á Akranesi og inn með Hvalfirði verði töluvert varir við björgunarskipið Kristrúnu á Bjargi næstu vikur.“

Skessuhorn minnir að endingu á bankareikning Björgunarfélags Akraness þar sem einatt er tekið við frjálsum framlögum vegna kaupa á skipinu: 0330-26-1800 og kt: 470100-3030

Sjá nánar: bjorgunarfelag.is