Frá Stykkishólmi. Ljósm. gj.

Opið hús í Samkomuhúsinu í dag

Gengið hefur verið frá samkomulagi milli Sveitarfélagsins Stykkishólms og Aftanskins, félags eldri borgara í Stykkishólmi, um afnot af Samkomuhúsinu við Aðalgötu 6. Áður hefur verið fjallað um aðdraganda samningsins í Skessuhorni. Aftanskin mun nýta húsnæðið undir tómstundastarf svo sem smíðar og fleira. Einnig hefur félagið heimilað Golfklúbbnum Mostra að nýta tímabundið hluta af húsnæðinu fyrir golfhermi. Golfklúbburinn er að vinna að því að koma upp framtíðar aðstöðu á svæði klúbbsins.