Líkur á að nýtt jarðhitasvæði sé fundið á Hellisheiði

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, var gestur í Býtinu á Bylgjunni í morgun. Þar upplýsti hann að Orkuveitan hafi fundið nýtt jarðhitasvæði á Meitlum á Hellisheiði. Þetta eigi þó enn eftir að staðfesta með þriðju borholu en ef þær rannsóknir staðfesta gruninn segir Sævar Freyr þetta vera stórkostleg tíðindi. Hann segir Orkuveituna hafa sett sér nýja stefnu fyrir tveimur árum og á næstu fimm árum eigi að fjárfesta fyrir 230 milljarða. „Þetta er á Hellisheiði, nánar tiltekið í Meitlum,“ sagði Sævar Freyr og bætti við að það hafi aldrei verið sagt frá þessum jarðhitafundi opinberlega áður. Á svæðinu sé 275 gráðu hiti og það sé búið að bora tvær borholur. Til að staðsetja Meitla sagði Sævar að ef fólk er á austurleið yfir Hellisheiði séu Meitlar á hægri hönd þegar Hellisheiðarvirkjun er til vinstri.