
Guðrún Fjeldsted fékk verðlaun fyrir frumlegasta búninginn. Ljósm. iss
Guðrún vann grímutöltið í búningi slátrara
Grímutölt Borgfirðings fór fram síðastliðinn laugardag í Faxaborg. Var mótið einungis ætlað félagsmönnum Borgfirðings. Margir býsna flottir búningar sáust svífa yfir gólf reiðhallarinnar þetta kvöld. Veitt voru verðlaun fyrir besta búninginn og var það Guðrún Fjeldsted sem vann til þeirra verðlauna, en hún var í gervi slátrara. Bentson ehf styrkti mótið meðal annars með því að greiða skráningargjöld fyrir börn og unglinga. Kaupfélag Borgfirðinga gaf auk þess gjafabréf. Helstu úrslit voru þessi: