Fréttir

true

Albert Hafsteinsson genginn til liðs við Kára

Albert Hafsteinsson leikmaður ÍA í knattspyrnu hefur yfirgefið liðið og gengið til liðs við Knattspyrnufélagið Kára þar sem hann verður í hlutverki spilandi þjálfara. Þá hefur áður verið greint frá því að Markó Vardic hafi sömuleiðis gengið úr röðum ÍA en samningur hans rann út í október síðastliðnum. Markó lagði land undir fót og gerði…Lesa meira

true

Enginn slasaðist í æsilegri eftirför

Aðfinnsluvert aksturslag og síðar ofsaakstur ökumanns fólksbíls síðdegis á mánudaginn var tilkynnt af vegfaranda í Borgarnesi til lögreglu. Viðkomandi ók þjóðveg eitt suður á bóginn. Á móts við Kúludalsá við Hvalfjörð reyndi lögregla að stöðva för ökumannsins, sem hann sinnti ekki. Upphófst þá eftirför sem barst í gegnum Hvalfjarðargöng og þaðan suður Kjalarnes, Mosfellsbæ og…Lesa meira

true

Markasúpa í fyrsta deildarleik ÍA

Sunnudaginn 12. apríl mættust Fram og ÍA á Lambhagavelli í Úlfarsárdalnum í Reykjavík. Skemmst er frá því að segja að liðin skildu jöfn að loknum fjörugum sex marka leik. Það bar ekki mikið á milli þessara liða í lok síðustu leiktíðar og mátti því búast við hörku leik, sem reyndist svo sannarlega raunin. Fyrri hálfleikur…Lesa meira

true

Miðflokkurinn býður í fyrsta sinn fram á Akranesi

Síðastliðinn föstudag skilaði Miðflokkurinn framboðslista sínum fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akranesi. Oddviti listans er Hrafn Ágúst Björnsson öryggisráðgjafi, Guðríður Þorbjörnsdóttir stjórnsýslufræðingur skipar annað sætið og Ólafur Rúnar Sigurðsson sölufulltrúi er í þriðja sæti. Í tilkynningu kemur fram að helstu áherslumál framboðsins verði; ábyrg fjármál og stjórnsýsla, skólamál, samgöngumál, íþróttamál og atvinnuuppbygging. Í heild sinni er listinn…Lesa meira

true

Áhugasama veiðimenn vantar til starfa

Sveitarfélagið Dalabyggð hefur auglýst eftir veiðimönnum til að sinna refa- og minkaveiðum í sveitarfélaginu árin 2026 til 2029. Skilyrði er að veiðimenn hafi gilt veiðikort og æskilegt að viðkomandi séu kunnir staðháttum og hafi reynslu af refa- og minkaveiðum. Núverandi veiðimenn sveitarfélagsins eru hvattir til að sækja um aftur og halda áfram sínu góða starfi.…Lesa meira

true

Svikapóstur á ferðinni í Borgarbyggð

Í tilkynningu frá sveitarfélaginu Borgarbyggð í gær 13. apríl, er vakin athygli íbúa og samstarfsaðila á svikapósti sem kominn er í umferð. Virðist hann vera sendur í nafni starfsmanns sveitarfélagsins og ber nafnið „Invoice“ sem þýðir „reikningur“ og inniheldur hlekk sem viðtakendur eru hvattir til að smella á. Stundum fylgir viðhengi í póstum sem þessum…Lesa meira

true

Ingimundur og Anna Heiða páskameistarar

Þriggja kvölda páskatvímenningi Bridgefélags Borgarfjarðar lauk í gær í Logalandi. Samanlagður árangur þriggja kvölda gilti til verðlauna. Ingimundur Jónsson og Anna Heiða Baldursdóttir báru sigur úr býtum með 183,5 stigum. Fengu þau að launum síðustu óbrotnu páskaeggin í Bónus. Í öðru sæti varð Sveinbjörn Eyjólfsson með 181,9 stig, en tvö af kvöldunum spilaði hann við…Lesa meira

true

Slökkvilið Snæfellsbæjar hélt tækjaæfingu

Íbúar Snæfellbæjar eiga öflugt og ágætlega mannað slökkvilið og vel tækjum búið til að takast á við fjölbreyttar aðstæður sem upp koma. Matthías Páll Gunnarsson er slökkviliðsstjóri og segir hann í samtali við Skessuhorn að alls séu 25 manns starfandi í liðinu og sé það prýðilega mannað vel æfðum mannskap. Hann segir að þeir haldi…Lesa meira

true

Bjóða til samtals um móttöku skemmtiferðaskipa

Skemmtiferðaskipasumarið 2026 fer brátt að hefjast og fyrsta skip er væntanlegt til Grundarfjarðar sunnudaginn 17. maí. Grundarfjarðarhöfn býður til samtals um móttöku skemmtiferðaskipa þar sem farið verður yfir sumarið, skipulag þess og breytingar. Síðan verður opið fyrir spurningar og umræður. Fundurinn verður haldinn í Samkomuhúsi Grundarfjarðar þriðjudaginn 28. apríl frá kl. 17:00-19:00. Fram kemur í…Lesa meira

true

Vegagerðin mismunar starfsstéttum

Mikið hefur verið rætt um lokun Hvalfjarðarganga í tengslum við framkvæmdirnar sem standa þar yfir og mikils óhagræðis sem af því hlýst. Eins og fram hefur komið verða göngin lokuð aðfaranætur mánudaga til föstudaga frá klukkan 21:30 til 06:00 fram til 29. maí – alls í tvo mánuði – vegna endurnýjunar á lýsingu í göngunum.…Lesa meira