
Miðflokkurinn býður í fyrsta sinn fram á Akranesi
Síðastliðinn föstudag skilaði Miðflokkurinn framboðslista sínum fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akranesi. Oddviti listans er Hrafn Ágúst Björnsson öryggisráðgjafi, Guðríður Þorbjörnsdóttir stjórnsýslufræðingur skipar annað sætið og Ólafur Rúnar Sigurðsson sölufulltrúi er í þriðja sæti. Í tilkynningu kemur fram að helstu áherslumál framboðsins verði; ábyrg fjármál og stjórnsýsla, skólamál, samgöngumál, íþróttamál og atvinnuuppbygging.
Í heild sinni er listinn þannig:
Nr. 1 Hrafn Ágúst Björnsson, öryggisráðgjafi
Nr. 2 Guðríður Þorbjörnsdóttir, stjórnsýslufræðingur
Nr. 3 Ólafur Rúnar Sigurðsson, sölufulltrúi og innkaup
Nr. 4 Hörður Svavarsson, rafvirkjameistari
Nr. 5 Aníta Hauksdóttir, Framleiðsluplönun Norðurál
Nr. 6 Finney Aníta Thelmudóttir, lögfræðingur
Nr. 7 Tómas Sjöberg Kjartansson, eigandi og rekstrarstjóri Kölska
Nr. 8 Ellý Sandra Ingvarsdóttir, sölumaður hjá Norðanfiski
Nr. 9 Gerald Brimir Einarsson, stöðvarstjóri og þjálfari
Nr. 10 Hermann Unnarsson, söluráðgjafi
Nr. 11 Ágúst Snær Þorsteinsson, pípari
Nr. 12 Valdimar Þorvaldsson, bílstjóri
Nr. 13 Steindór Mar Gunnarsson, námsmaður og starfsmaður í Elkem
Nr. 14 Guðmundur Jóhann Steindórsson, verkefnastjóri
Nr. 15 Helga Kristín Haug Jónsdóttir, vélsmiður
Nr. 16 Emin Kadri Eminsson, athafnamaður
Nr. 17 Jón Jónsson, verkamaður
Nr. 18 Óli Jón Gunnarsson, fv. framkvæmdastjóri.