
Heimskautarefurinn, eða íslenska tófan, var eina spendýrið á Íslandi þegar fyrsta landnámsfólkið fá Norður-Evrópu kom hingað. Myndin var tekin í Borgarfirði síðasta vor. Ljósm. gó
Áhugasama veiðimenn vantar til starfa
Sveitarfélagið Dalabyggð hefur auglýst eftir veiðimönnum til að sinna refa- og minkaveiðum í sveitarfélaginu árin 2026 til 2029. Skilyrði er að veiðimenn hafi gilt veiðikort og æskilegt að viðkomandi séu kunnir staðháttum og hafi reynslu af refa- og minkaveiðum.