
Svikapóstur á ferðinni í Borgarbyggð
Í tilkynningu frá sveitarfélaginu Borgarbyggð í gær 13. apríl, er vakin athygli íbúa og samstarfsaðila á svikapósti sem kominn er í umferð. Virðist hann vera sendur í nafni starfsmanns sveitarfélagsins og ber nafnið „Invoice“ sem þýðir „reikningur“ og inniheldur hlekk sem viðtakendur eru hvattir til að smella á. Stundum fylgir viðhengi í póstum sem þessum sem ALDREI má opna. Um er að ræða svikapóst (phishing) sem hefur það að markmiði að blekkja fólk til að veita aðgang að viðkvæmum upplýsingum og setja upp skaðlegan hugbúnað og freista þess að hafa fé af fólki. Mikilvægt er að hafa eftirfarandi í huga: Ekki smell á hlekkinn í póstinum, ekki opna viðhengi sem fylgja, eyða póstinum strax og tilkynna grunsamlegan póst til viðeigandi aðila eða tæknideildar. „Þetta er mál sem Borgarbyggð tekur alvarlega og vinnur sveitarfélagið að því að koma í veg frekari dreifingu svikapóstsins. Íbúar eru hvattir til þess að vera á varðbergi og sýna aðgát gagnvart óvæntum tölvupóstum sem berast.“