Albert Hafsteinsson er orðinn spilandi þjálfari Knattspyrnufélagsins Kára á Akranesi. Ljósm. Guðmundur Bjarki

Albert Hafsteinsson genginn til liðs við Kára

Albert Hafsteinsson leikmaður ÍA í knattspyrnu hefur yfirgefið liðið og gengið til liðs við Knattspyrnufélagið Kára þar sem hann verður í hlutverki spilandi þjálfara. Þá hefur áður verið greint frá því að Markó Vardic hafi sömuleiðis gengið úr röðum ÍA en samningur hans rann út í október síðastliðnum. Markó lagði land undir fót og gerði samning við lið í Grikklandi.