
Enginn slasaðist í æsilegri eftirför
Aðfinnsluvert aksturslag og síðar ofsaakstur ökumanns fólksbíls síðdegis á mánudaginn var tilkynnt af vegfaranda í Borgarnesi til lögreglu. Viðkomandi ók þjóðveg eitt suður á bóginn. Á móts við Kúludalsá við Hvalfjörð reyndi lögregla að stöðva för ökumannsins, sem hann sinnti ekki. Upphófst þá eftirför sem barst í gegnum Hvalfjarðargöng og þaðan suður Kjalarnes, Mosfellsbæ og til Reykjavíkur.