Skagamaðurinn Viktor Jónsson, skallar boltann í netið eftir mikinn darraðardans í teig Framara. Ljósm. Fótbolti.net

Markasúpa í fyrsta deildarleik ÍA

Sunnudaginn 12. apríl mættust Fram og ÍA á Lambhagavelli í Úlfarsárdalnum í Reykjavík. Skemmst er frá því að segja að liðin skildu jöfn að loknum fjörugum sex marka leik. Það bar ekki mikið á milli þessara liða í lok síðustu leiktíðar og mátti því búast við hörku leik, sem reyndist svo sannarlega raunin. Fyrri hálfleikur var tíðindalítill og skiptust liðin á að sækja þar sem fá færi litu dagsins ljós. Framarar héldu þó ýfið betur í boltann í upphafi leiks en smám saman náðu Skagamenn betri tökum á uppspili sínu og jafnræði varð meira með liðnum. Staðan því markalaus í hálfleik.