Fréttir

true

Leikskólarnir Klettaborg og Andabær fengu styrk úr Sprotasjóði

Laugardaginn 11. apríl úthlutaði Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra styrkjum úr Sprotasjóði við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Leikskólinn Klettaborg í Borgarbyggð í samstarfi við leikskólann Andabæ fékk veglega úthlutun úr sjóðnum til vinnslu verkefnisins STEAM og leiðsagnarmat – Þróun námsmenningar. Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum…Lesa meira

true

Karlalið ÍA bikarmeistari í keilu

Leikið var til úrslita í gær í bikarkeppni Keilusambands Íslands í Egilshöll. Karlalið ÍA gerði sér lítið fyrir og hreppti gullverðlaun og er því bikarmeistari 2026. Í úrslita viðureigninni spilaði liðið við KFR-Lærlinga og vann sína viðureign næsta örugglega; 3 – 0. ÍA byrjaði heldur betur vel í viðureigninni og spilaði 720 gegn 587 en…Lesa meira

true

Arnar ráðinn næsti framkvæmdastjóri GRun

Stjórn Guðmundar Runólfssonar hf í Grundarfirði hefur ráðið Arnar Kristjánsson sem næsta framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Hann tekur formlega við starfinu 1. ágúst nk. en mun fram að því verða starfandi við hlið Guðmundar Smára Guðmundsonar núverandi framkvæmdastjóra. Í tilkynningu frá Runólfi Guðmundssyni formanni stjórnar segir: „Arnar býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu á á fyrirtækinu enda…Lesa meira

true

Besta afkoma Snæfellsbæjar í 28 ár

Fundur númer 400 í bæjarstjórn Snæfellsbæjar var haldinn síðastliðinn fimmtudag í ráðhúsi bæjarins. Á afmælisfundinum var lagður fram til fyrri umræðu ársreikningur sveitarfélagsins fyrir 2025. „Það er gaman að segja frá því að aldrei þau 28 ár sem ég hef verið bæjarstjóri höfum við fengið út eins góða afkomu af rekstrinum hjá bæjarfélaginu og ber…Lesa meira

true

Tölt og skeið á síðasta móti Vesturlandsdeildarinnar

Á morgun, þriðjudaginn 14. apríl klukkan 18, er komið að síðasta móti vetrarins í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum. Keppni hefst í T1 klukkan 18 og síðan verður keppt í skeiði í gegnum Faxaborg. 31 keppandi er skráður til leiks í töltinu og 25 í skeiðinu. „Upplagt er því að leggja leið sina í Borgarnes og fylgjast…Lesa meira

true

Sýna Brotabrot í Safnahúsi

Síðastliðinn laugardag var opnuð í Hallsteinssal Safnahúss Borgarfjarðar í Borgarnesi sýningin Brotabrot. Þar sýnir listahópurinn Arkir fjölbreytt úrval bókverka. Hópinn skipa: Anna Snædís Sigmarsdóttir, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Ingiríður Óðinsdótttir, Kristín Guðbrandsdóttir, Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, Sigurborg Stefánsdóttir og Svanborg Matthíasdóttir. Verkin á sýningunni sameina mismunandi listform en í grunninn er unnið…Lesa meira

true

Mokveiði af steinbít og lækkandi verð

Nú þegar hrygningarstoppið stendur sem hæst er opið svæði til steinbítsveiða línubáta við Látrabjarg. Þar hafa línubátar af Snæfellsnesi mokfiskað af steinbít að undanförnu en togarar verið aðeins vestar og gert það sömuleiðis gott. Magni Aðalsteinsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar, segir að um leið og mikið berst af steinbít lækki verð mikið. Á föstudag var meðalverð…Lesa meira

true

Ríkið í tímabundnar aðgerðir til lækkunar verðbólgu

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku tímabundnar efnahagsaðgerðir til að hemja verðbólgu og bregðast við verðhækkunum á olíu vegna stríðsátaka við Persaflóa. Markmið aðgerðanna er að fletja út kúfinn vegna þessara hækkana og draga úr áhrifum þeirra á íslensk heimili og fyrirtæki. „Aðgerðirnar eru tímabundnar á meðan mikil óvissa er um þróun mála sem gefur stjórnvöldum…Lesa meira

true

Mikil sóknarfæri á Vesturlandi í fjölgun óstaðbundinna starfa

Út er komin ný skýrsla um óstaðbundin störf, en hún var unnin af Rannsóknarsetrinu í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst fyrir Samtök sveitarfélag á Vesturlandi. Meðal þess sem fram kemur í skýrslunni er að íbúum á landsbyggðinni gæti fjölgað um allt að 20% og fækkað um 12% á höfuðborgarsvæðinu. Talið er að 58%…Lesa meira

true

Betri afkoma Grundarfjarðarbæjar en áætlað var

Á fundi bæjarstjórnar Grundarfjarðar síðastliðinn fimmtudag var ársreikningur bæjarsjóðs lagður fram til fyrri umræðu og samþykktur. Þar kemur fram að rekstrartekjur samstæðunnar námu 2.011 milljónum króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 1.959,1 milljón. Rekstrartekjur A-hluta námu 1.632,3 millj. kr. en áætlun gerði ráð fyrir 1.616,8 millj. kr. Rekstrarniðurstaða samkvæmt samanteknum ársreikningi A og B hluta…Lesa meira