
Bikarmeistarar KLÍ 2026 koma af Skipaskaga.
Karlalið ÍA bikarmeistari í keilu
Leikið var til úrslita í gær í bikarkeppni Keilusambands Íslands í Egilshöll. Karlalið ÍA gerði sér lítið fyrir og hreppti gullverðlaun og er því bikarmeistari 2026. Í úrslita viðureigninni spilaði liðið við KFR-Lærlinga og vann sína viðureign næsta örugglega; 3 – 0. ÍA byrjaði heldur betur vel í viðureigninni og spilaði 720 gegn 587 en úrslit í leik tvö réðust bara á síðasta kasti í 10. ramma þar sem ÍA hafði betur, 617 gegn 612. Skagamenn sigldu þessu nokkuð þægilega í höfn í þriðja leiknum og unnu þar 621 gegn 519. Samtals skor þeirra var 1.958 gegn 1.718.