Sýna Brotabrot í Safnahúsi

Síðastliðinn laugardag var opnuð í Hallsteinssal Safnahúss Borgarfjarðar í Borgarnesi sýningin Brotabrot. Þar sýnir listahópurinn Arkir fjölbreytt úrval bókverka. Hópinn skipa: Anna Snædís Sigmarsdóttir, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Ingiríður Óðinsdótttir, Kristín Guðbrandsdóttir, Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, Sigurborg Stefánsdóttir og Svanborg Matthíasdóttir.

Verkin á sýningunni sameina mismunandi listform en í grunninn er unnið með pappír og pappírsbrot. „Bók er í eðli sínu nytjahlutur, en í bókverkunum er leikið með þrívítt formið og frumþætti bóka; síður, arkir og spjöld. Á sýningunni leitast listamennirnir við að brjóta upp klassískt form bókarinnar og finna nýjar leiðir til að vinna með bókina á óhefðbundinn hátt,“ segir í kynningu. Sýningin stendur til 2. maí.