Við eldsneytisdælur Costco þar sem eldsneytisverð er lægst um þessar mundir.

Ríkið í tímabundnar aðgerðir til lækkunar verðbólgu

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku tímabundnar efnahagsaðgerðir til að hemja verðbólgu og bregðast við verðhækkunum á olíu vegna stríðsátaka við Persaflóa. Markmið aðgerðanna er að fletja út kúfinn vegna þessara hækkana og draga úr áhrifum þeirra á íslensk heimili og fyrirtæki.