Börn að leik á Hellissandi. Ljósm. úr safni/snb.is

Besta afkoma Snæfellsbæjar í 28 ár

Fundur númer 400 í bæjarstjórn Snæfellsbæjar var haldinn síðastliðinn fimmtudag í ráðhúsi bæjarins. Á afmælisfundinum var lagður fram til fyrri umræðu ársreikningur sveitarfélagsins fyrir 2025. „Það er gaman að segja frá því að aldrei þau 28 ár sem ég hef verið bæjarstjóri höfum við fengið út eins góða afkomu af rekstrinum hjá bæjarfélaginu og ber það að þakka öflugu samfélagi og atvinnulífi, góðum stjórnendum stofnana, starfsmönnum og bæjarstjórn.  Jafnframt er ljóst að Snæfellsbær stendur afar vel fjárhagslega sem gefur tækifæri á enn frekari fjárfestingar og vexti á næstu árum,“ skrifaði Kristinn Jónasson bæjarstjóri af þessu tilefni.