Grundarfjörður. Ljósm. úr safni/ tfk

Betri afkoma Grundarfjarðarbæjar en áætlað var

Á fundi bæjarstjórnar Grundarfjarðar síðastliðinn fimmtudag var ársreikningur bæjarsjóðs lagður fram til fyrri umræðu og samþykktur. Þar kemur fram að rekstrartekjur samstæðunnar námu 2.011 milljónum króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 1.959,1 milljón. Rekstrartekjur A-hluta námu 1.632,3 millj. kr. en áætlun gerði ráð fyrir 1.616,8 millj. kr. Rekstrarniðurstaða samkvæmt samanteknum ársreikningi A og B hluta var jákvæð um 179,5 milljón króna, sem er 68 milljónum króna meira en áætlað hafði verið. Sé litið til A hluta eingöngu, þá er rekstarafkoma jákvæð á árinu um 58,8 millj. kr.