
Leikskólarnir Klettaborg og Andabær fengu styrk úr Sprotasjóði
Laugardaginn 11. apríl úthlutaði Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra styrkjum úr Sprotasjóði við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Leikskólinn Klettaborg í Borgarbyggð í samstarfi við leikskólann Andabæ fékk veglega úthlutun úr sjóðnum til vinnslu verkefnisins STEAM og leiðsagnarmat - Þróun námsmenningar. Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastigs. Á þessu ári bárust 39 umsóknir til sjóðsins og fengu 20 skólaþróunarverkefni styrk.