Guðmar Þór Pétursson og hryssan Friðsemd í brautinni í sömu keppni fyrir ári.

Tölt og skeið á síðasta móti Vesturlandsdeildarinnar

Á morgun, þriðjudaginn 14. apríl klukkan 18, er komið að síðasta móti vetrarins í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum. Keppni hefst í T1 klukkan 18 og síðan verður keppt í skeiði í gegnum Faxaborg.

31 keppandi er skráður til leiks í töltinu og 25 í skeiðinu. „Upplagt er því að leggja leið sina í Borgarnes og fylgjast með spennandi keppni. Ráslistar eru aðgengilegir í HorseDay appinu,“ segir í tilkynningu.