
Arnar Kristjánsson og Guðmundur Smári Guðmundsson. Ljósm. GRun
Arnar ráðinn næsti framkvæmdastjóri GRun
Stjórn Guðmundar Runólfssonar hf í Grundarfirði hefur ráðið Arnar Kristjánsson sem næsta framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Hann tekur formlega við starfinu 1. ágúst nk. en mun fram að því verða starfandi við hlið Guðmundar Smára Guðmundsonar núverandi framkvæmdastjóra.