Ljósmynd úr skýrslunni sem tekin var í Norðurárdal í Borgarfirði.

Mikil sóknarfæri á Vesturlandi í fjölgun óstaðbundinna starfa

Út er komin ný skýrsla um óstaðbundin störf, en hún var unnin af Rannsóknarsetrinu í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst fyrir Samtök sveitarfélag á Vesturlandi. Meðal þess sem fram kemur í skýrslunni er að íbúum á landsbyggðinni gæti fjölgað um allt að 20% og fækkað um 12% á höfuðborgarsvæðinu. Talið er að 58% aukning gæti orðið í óstaðbundnum störfum á Vesturlandi ef sóknarfæri yrðu nýtt í samræmi við skoðanir almennra starfsmanna ríkisins og annarra vinnuveitenda. Þá kemur fram að yfir helmingur landsmanna sinnir í dag hluta eða öllu leyti starfa sinna óstaðbundið.