Fréttir

true

Af starfi Félags aldraðra í Borgarfjarðardölum

Aðalfundur félag aldraðra í Borgarfjarðardölum var haldinn í Brún miðvikdaginn 28. janúar og var þokkalega sóttur. Alls eru félagar 108 og hefur fjöldinn verið svipaður í nokkur ár. Í upphafi fundar minntist formaður þeirra er látist höfðu á árinu; þeirra Önnu Sigríðar Þorgrímsdóttur, Eyjólfs Sigurjónssonar, Steinunnar Eiríksdóttur og Diðriks Vilhjálmssonar. Risu fundarmenn úr sætum og…Lesa meira

true

Fékk sér rennibekk til að hafa eitthvað til að dunda við

Aðalsteinn Ólafsson sjómanni á Hellissandi er margt til lista lagt. Hann framleiðir nú tréhandverk, fór að stunda þá iðju eftir vinnuslys sem hann lenti í við að skera beitu. Þá lenti hann í beituskurðarvél og missti framan af fjórum fingrum á annarri hendi og var lengi frá vinnu af þeim sökum. „Þegar ég komst aftur…Lesa meira

true

Tveir styrkir til byggðaverkefna í Dölum og Snæfellsbæ

Innviðaráðuneytið hefur úthlutað styrkjum að upphæð 170 milljónum kr. til fjórtán verkefna um landið með að markmiði að efla viðkvæmar byggðir. Alls bárust 28 umsóknir fyrir um 756 milljónir króna. Þetta er hæsta úthlutun úr þessari aðgerð á tímabili gildandi byggðaáætlunar. „Markmiðið með aðgerðinni er að tengja sóknaráætlanir landshluta við byggðaáætlun og færa heimafólki aukna…Lesa meira

true

Öskudagur til uppgripa

Þau voru hraustleg og útitekin börnin sem komu við á ritstjórnarskrifstofu Skessuhorns í dag. Sungu og fengu nammi að launum og nýjasta tölublaðið glóðvolgt úr prentsmiðjunni. Öskudagurinn er jafnan drjúgur aðfangadagur hjá duglegum krökkum. Þau synja lagstúf og fá verðlaun, en halda síðan áköf út í austan vindinn og á næsta vinnustað. Takk fyrir komuna…Lesa meira

true

Ræddu gjaldskyldu á ferðamannastöðum

Í gær fór fram málþing í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi. Yfirskrift þess var; „Gjaldskylda, þjónustugjald eða þjórfé?“  Þar var rætt um gjaldskyldu á ferðamannastöðum; hlutverk, ábyrgð, réttindi og skyldur. Á þinginu stigu á stokk fulltrúar ólíkra sjónarmiða og ræddu hvernig tryggja megi að gjaldtaka byggi á skýrum forsendum og stuðli að raunverulegum ábata fyrir staði, samfélög…Lesa meira

true

Heimsóttu íbúa á Höfða

Páll Guðmundsson á Húsafelli mætti í helgistund á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Höfða á Akranesi í morgun. Mætti hann með rabarbara- og Pan flautu úr eigin smiðju. Hann lék á hljóðfærin, fór með vísur eftir afa sinn Pál á Hjálmsstöðum og söng „Móðir jörð“ fornt rímnalag með texta eftir Sigurð Breiðfjörð. Á myndinni er Páll að…Lesa meira

true

Eldur í sinu á Mýrunum

Klukkan 10:47 í morgun fékk Slökkvilið Borgarbyggðar útkall vegna sinuelds við bæinn Álftártungu á Mýrum. Í upphafi voru allar þrjár starfsstöðvar slökkviliðsins kallaðar út en síðar voru afturkölluð viðbrögð frá stöðvunum á Hvanneyri og í Reykholti. Heiðar Örn Jónsson slökkviliðsstjóri sagði í samtal við Skessuhorn að eldur hafi logað í gróðri nærri íbúðarhúsinu á bænum.…Lesa meira

true

„Það þarf að gefa af sér til samfélagsins“

Eyþór Stanley Eyþórsson, formaður verkefnastjórnar Skúrsins á Akranesi, segir mikilvægt að koma eldri mönnum í virkni til að þeir einangrist ekki félagslega. Skúrinn eigi að verða fastur punktur í bæjarlífinu á Akranesi „Þetta snýst allt um félagsskapinn, það sem menn áorka yfir daginn er í sjálfu sér aukaatriði. Aðalmálið er að veita fólki vettvang og…Lesa meira

true

Kynslóð sem vill hafa áhrif

Fundur haldinn í bæjarstjórn unga fólksins á Akranesi Síðdegis í gær fór fram 24. fundur bæjarstjórnar unga fólksins á Akranesi. Sem fyrr koma þar saman fulltrúar nemenda og félagsmiðstöðva, halda erindi og komu með tillögur um það sem betur má fara í samfélaginu að þeirra mati. Með unga fólkinu á fundinum sat bæjarstjórn eldra fólksins.…Lesa meira

true

Rikki er Borgnesingur ársins 2025

Á þorrablóti í Borgarnesi síðastliðinn laugardag var kynnt val á Borgnesingi ársins 2025. Það fór að þessu sinni fram með breyttu sniði. Fyrir þorrablótið, sem Körfuknattleiksdeild Skallagríms heldur, hafði íbúum verið gefinn kostur á að senda inn tilnefningar ásamt rökstuðningi um hver hlyti þessa nafnbót. Tók stjórn körfuknattleiksdeildarinnar þær fyrir á fundi þar sem endanleg…Lesa meira