
Páll ræðir hér við Indriða Valdimarsson. Ljósm. hgj
Heimsóttu íbúa á Höfða
Páll Guðmundsson á Húsafelli mætti í helgistund á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Höfða á Akranesi í morgun. Mætti hann með rabarbara- og Pan flautu úr eigin smiðju. Hann lék á hljóðfærin, fór með vísur eftir afa sinn Pál á Hjálmsstöðum og söng „Móðir jörð“ fornt rímnalag með texta eftir Sigurð Breiðfjörð. Á myndinni er Páll að sýna heimilisfólki flautu og fjær við orgelið er Hilmar Örn Agnarsson organisti í Akraneskirkju.