
Öskudagur til uppgripa
Þau voru hraustleg og útitekin börnin sem komu við á ritstjórnarskrifstofu Skessuhorns í dag. Sungu og fengu nammi að launum og nýjasta tölublaðið glóðvolgt úr prentsmiðjunni. Öskudagurinn er jafnan drjúgur aðfangadagur hjá duglegum krökkum. Þau synja lagstúf og fá verðlaun, en halda síðan áköf út í austan vindinn og á næsta vinnustað. Takk fyrir komuna hressir og kátir krakkar!
