
Af starfi Félags aldraðra í Borgarfjarðardölum
Aðalfundur félag aldraðra í Borgarfjarðardölum var haldinn í Brún miðvikdaginn 28. janúar og var þokkalega sóttur. Alls eru félagar 108 og hefur fjöldinn verið svipaður í nokkur ár. Í upphafi fundar minntist formaður þeirra er látist höfðu á árinu; þeirra Önnu Sigríðar Þorgrímsdóttur, Eyjólfs Sigurjónssonar, Steinunnar Eiríksdóttur og Diðriks Vilhjálmssonar. Risu fundarmenn úr sætum og vottuðu þeim látnu virðingu. Síðan flutti Þórólfur Sveinsson ljóð dagsins og tók síðan við fundarstjórn. Magnús B. Jónsson fráfarandi ritari las fundargerð síðasta aðalfundar sem var samþykkt.
Að lokinni skýrslu formanns og gjaldkera voru fyrirspurnir úr sal um starfið. Eftir litlar umræður voru reikningar bornir upp og þeir samþykktir. Formenn nefnda fluttu skýrslur sínar. Þá var borin upp tillaga að árgjald árið 2026 yrði 3.500 krónur sem var samþykkt. Ingibjörg Jónasdóttir bar upp tillögu uppstillingarnefndar, sem var samþykkt samhljóða. Ekki var fleira tekið fyrir og fundi slitið. Nú var öllum er aðalfund sóttu boðið til veislu, en það voru konur úr Kvenfélagi Hvítársíðu sem sáu um veitingarnar.
Stjórn FaB kom saman miðvikudaginn 4. febrúar í Brún og skipti með sér verkum. Stjórnina skipa; Flemming Jessen formaður, Fanney Einarsdóttir gjaldkeri, Vilhjálmur Diðriksson ritari og í varastjórn eru Ágúst Elí Ágústsson, Magnús B. Jónsson og Þorbergur Þórðarson. Mánudaginn 2. febrúar komu þeir sem skipa kaffinefnd félagsins, alls 11 manns, saman og skiptu með sér verkum.
Félagið hefur haft aðstöðu í félagsheimilinu Brún í Bæjarsveit til fjölda ára, en þar koma félagarnir sama alla miðvikudaga á tímabilinu september til loka maí frá klukkan 13:30 til ca 16:30. Allir sem orðnir eru 60 ára og eldri geta orðið félagar. Bara mæta og kynna sér starfið og ræða við þá sem þar hafa starfað, sumir lengi en aðrir aðrir um skemmri tíma. Maður er manns gaman.
Flemming Jessen

