
Ræddu gjaldskyldu á ferðamannastöðum
Í gær fór fram málþing í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi. Yfirskrift þess var; „Gjaldskylda, þjónustugjald eða þjórfé?“ Þar var rætt um gjaldskyldu á ferðamannastöðum; hlutverk, ábyrgð, réttindi og skyldur. Á þinginu stigu á stokk fulltrúar ólíkra sjónarmiða og ræddu hvernig tryggja megi að gjaldtaka byggi á skýrum forsendum og stuðli að raunverulegum ábata fyrir staði, samfélög og gesti.Meðal frummælenda var Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar sem ræddi málið út frá sjónarhóli sveitarfélaga. Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Náttúruverndarstofnunar, hélt erindi með heitinu „Gestagjöld - lykill að þjónustu og þekkingu.“ Þjóðgarðsvörðurinn Ragnhildur Sigurðardóttir fjallaði um þjónustugjöld í Snæfellsjökulsþjóðgarði, áhrif og reynslu af þeim og Þorgrímur Guðmundsson, selabóndi í Ytri-Tungu í Staðarsveit, sagði frá gjaldskyldum bílastæðum í Selafjörunni. Loks ræddi Ásgeir Baldursson, forstjóri Arctic Adventures, umgjörð og upplifun ferðamanna, ræddi um réttláta gjaldtöku og aðgangsstýringu á áningarstöðum. Boðað hafði verið að Kolbeinn Árnason, skrifstofustjóri á skrifstofu auðlinda í atvinnuvegaráðuneytinu héldi erindi, en hann boðaði forföll sem og aðrir gestir úr ráðuneytinu.