Á kyrrum haustdegi við Búðir. Ljósm. mm

Tveir styrkir til byggðaverkefna í Dölum og Snæfellsbæ

Innviðaráðuneytið hefur úthlutað styrkjum að upphæð 170 milljónum kr. til fjórtán verkefna um landið með að markmiði að efla viðkvæmar byggðir. Alls bárust 28 umsóknir fyrir um 756 milljónir króna. Þetta er hæsta úthlutun úr þessari aðgerð á tímabili gildandi byggðaáætlunar. „Markmiðið með aðgerðinni er að tengja sóknaráætlanir landshluta við byggðaáætlun og færa heimafólki aukna ábyrgð á ráðstöfun fjármuna. Landshlutasamtök sveitarfélaga geta sótt um framlög í samkeppnissjóð vegna verkefna sem nýtast einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans eða landshlutanum í heild. Verkefni sem talin eru hafa varanleg áhrif, eru atvinnuskapandi og hvetja til nýsköpunar eru í forgangi. Sérstök áhersla er lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf,“ segir í tilkynningu.