
Eldur í sinu á Mýrunum
Klukkan 10:47 í morgun fékk Slökkvilið Borgarbyggðar útkall vegna sinuelds við bæinn Álftártungu á Mýrum. Í upphafi voru allar þrjár starfsstöðvar slökkviliðsins kallaðar út en síðar voru afturkölluð viðbrögð frá stöðvunum á Hvanneyri og í Reykholti. Heiðar Örn Jónsson slökkviliðsstjóri sagði í samtal við Skessuhorn að eldur hafi logað í gróðri nærri íbúðarhúsinu á bænum. Húsráðendur hafi verið langt komnir með að slökkva en slökkviliðsmenn úr Borgarnesi lokið verkinu. Hávaða norðaustan rok var á Mýrunum í morgun og þakkaði Heiðar fyrir að lækur hamlaði útbreiðslu eldsins, en handan hans er mikill eldsmatur og gróður mjög þurr eftir langvarandi þurrviðri. Um möguleg upptök eldsins sagði Heiðar Örn líklegt að glóð hafi borist úr strompi yfir kamínu í íbúðarhúsinu.