Fréttir

true

Keppa fyrir hönd Óðals í Samvest

Guðrún Katrín Sveinsdóttir nemandi í Grunnskólanum í Borgarnesi og Kristbjörg Ragney Eiríksdóttir í Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum báru sigur úr býtum í Söngkeppni Óðals í Borgarbyggð sem fram fór í síðustu viku. Þær munu því keppa fyrir hönd Óðals í Söngkeppni Samvest sem haldin verður í Stykkishólmi í mars. Sú keppni er undankeppni félagsmiðstöðva á…Lesa meira

true

Málþing til heiðurs Sigurði Má fiskifræðingi

Hafrannsóknastofnun og Landbúnaðarsafn Íslands efna til málþings fimmtudaginn 12. mars nk. kl. 13:00 á Hvanneyri. Það er til heiðurs Sigurði Má Einarsyni, fiskifræðingi. Sigurður Már hefur sinnt rannsóknum á ferskvatnsfiskum í rúm 40 ár, en hann hóf störf hjá Veiðimálastofnun árið 1981 samhliða námi. Í júní 1985 tók hann við starfsstöð Veiðimálstofnunnar á Vesturlandi, fyrst…Lesa meira

true

Mokveiði og bátarnir þurftu að tvílanda

Aflabrögð þeirra báta sem róa frá Snæfellsbæ voru með eindæmum góð í síðustu viku. Fiskverð hefur haldist hátt svo sjómenn ráða sér vart fyrir fögnuði. Netabáturinn Bárður SH hefur komið að landi með um 60 tonna afla eftir daginn og á föstudag tvílandaði báturinn. Einnig hefur netabáturinn Ólafur Bjarnason SH tvílandað og aflinn var yfir…Lesa meira

true

Lilja bar sigur úr býtum í formannskjöri hjá Framsókn

38. flokksþing Framsóknarflokksins stendur nú yfir í Reykjavík undir slagorðinu; Vinna, vöxtur, velferð. Þar er ný forysta flokksins kosin. Sigurður Ingi Jóhannsson fráfarandi formaður til tíu ára gaf ekki kost á sér til endurkjörs og kosið var á milli þeirra Ingibjargar Isaksen þingmanns og Lilju Daggar Alfreðsdóttur fv. þingmanns, ráðherra og varaformanns. Úrslit urðu þau…Lesa meira

true

Vaskir Skagastrákar unnu Nordsjælland í æfingaleik

Knattspyrnulið U19 hjá ÍA er þessa dagana statt í æfingaferð í Danmörku og Svíþjóð. Í ferðinni spila þeir þrjá æfingaleiki við Akademíu – lið FC Norsjælland, AB og Helsingborg. ÍA hefur undanfarin tvö ár orðið bikarmeistari hér á landi í 2. flokki og er leikmannahópurinn mjög öflugur. Alls eiga leikmenn í hópnum yfir 80 unglingalandsleiki…Lesa meira

true

Víða var haldið upp á 112 daginn

Víðsvegar um landið var haldið upp á 112 daginn sl. miðvikudag. Markmið hans var sem fyrr að minna á þetta mikilvæga neyðarnúmer ásamt því að þakka neyðarvörðum og öðrum viðbragðsaðilum fyrir þeirra ómetanlegu störf. Dagsetningin 11.2. er táknrænn og hjálpar landsmönnum að muna þetta lífsnauðsynlega númer. Þema 112 dagsins var að nú eru 30 ár…Lesa meira

true

Ný nálgun í þjónustu við eldra fólk

Íslenskt samfélag stendur á tímamótum. „Þjóðin er að eldast og eldra fólk er virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr. Í því felst ekki aðeins áskorun heldur einnig mikil tækifæri. Þjónusta við eldra fólk þarf að þróast í takt við þessar breytingar. Undir heitinu „Gott að eldast“ er nú hafin ný vegferð þar sem stjórnvöld…Lesa meira

true

Loðnuvertíðin komin á fullt

Loðnuvertíðin er hafin af fullum krafti og hafa skipin fengið ágætis afla síðustu daga. Loðnan gengur nú hratt vestur með suðausturströnd landsins. Hrognafyllingin er núna á bilinu 16 – 18 prósent sem þýðir að heilfrysting fyrir Japansmarkað er hafin. Hrognataka og frysting hefst að jafnaði þegar hrognafyllingin er komin um eða yfir 20%. Heildaraflamark í…Lesa meira

true

Fjölmennasta útskrift í sögu Háskólans á Bifröst

Í dag munu 213 nemendur brautskrást frá Háskólanum á Bifröst við hátíðlega athöfn í Hjálmakletti í Borgarnesi. Þetta er fjölmennasti hópur útskriftarnema í rúmlega hundrað ára sögu skólastarfs Bifrastar. „Þessi fjölmenni hópur ber vitni um þann mikla vöxt og kraft sem einkennt hefur háskólann á síðustu misserum,“ segir í tilkynningu. Fram kemur að hátíðardagskráin verður…Lesa meira

true

Sóttur með þyrlu eftir hátt fall

Lögregla, björgunarsveitir á Snæfellsnesi, sjúkraflutningafólk, læknir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út í gær að Selvallavatni á Vatnaleið. Erlendur ferðamaður sem hafði verið á göngu féll í hálku og hrapaði 15 til 20 metra. Hann var með meðvitund þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn. Hlúð var að manninum á vettvangi en hann svo hífður um borð…Lesa meira