F.v. Jóna Björg Guðmundsdóttir verkefnastjóri fjölskyldumála hjá Dalabyggð, Sigríður Jónsdóttir verkstjóri heimaþjónustu hjá Dalabyggð, Heiður Haraldsdóttir iðjuþjálfi hjá SSV, Líf Lárusdóttir verkefnastjóri hjá SSV og Hulda Gestsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á HVE. Á myndina vantar Þórunni B. Einarsdóttur yfirhjúkrunarfræðing hjá HVE í Dalabyggð og Kristínu Guðbjörgu Arnardóttur hjúkrunarstjóra Silfurtúns.

Ný nálgun í þjónustu við eldra fólk

Íslenskt samfélag stendur á tímamótum. „Þjóðin er að eldast og eldra fólk er virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr. Í því felst ekki aðeins áskorun heldur einnig mikil tækifæri. Þjónusta við eldra fólk þarf að þróast í takt við þessar breytingar. Undir heitinu „Gott að eldast“ er nú hafin ný vegferð þar sem stjórnvöld taka utan um málefni eldra fólks með nýjum hætti. Meginhugsunin er skýr; eldra fólk er ekki byrði á samfélaginu heldur hefur það ótvírætt virði,“ segir Líf Lárusdóttir verkefnisstjóri í Gott að eldast hjá SSV í tilefni þess að sveitarfélagið Dalabyggð er þriðja sveitarfélagið á Vesturlandi til að stofna Móma teymi. Fyrst voru Borgarbyggð og Akraneskaupstaður. Stefnt er að sambærilegum teymum í öllum sveitarfélögum á Vesturlandi.