
Skagaliðið. Ljósm. kfía
Vaskir Skagastrákar unnu Nordsjælland í æfingaleik
Knattspyrnulið U19 hjá ÍA er þessa dagana statt í æfingaferð í Danmörku og Svíþjóð. Í ferðinni spila þeir þrjá æfingaleiki við Akademíu - lið FC Norsjælland, AB og Helsingborg. ÍA hefur undanfarin tvö ár orðið bikarmeistari hér á landi í 2. flokki og er leikmannahópurinn mjög öflugur. Alls eiga leikmenn í hópnum yfir 80 unglingalandsleiki að baki.