
Sóttur með þyrlu eftir hátt fall
Lögregla, björgunarsveitir á Snæfellsnesi, sjúkraflutningafólk, læknir og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út í gær að Selvallavatni á Vatnaleið. Erlendur ferðamaður sem hafði verið á göngu féll í hálku og hrapaði 15 til 20 metra. Hann var með meðvitund þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn. Hlúð var að manninum á vettvangi en hann svo hífður um borð í þyrluna sem flutti hann á sjúkrahús í Reykjavík. Líðan mannsins liggur ekki fyrir eftir hið háa fall, en hann gat að sögn sjónarvotta tjáð sig og hreyft útlimi.