
Málþing til heiðurs Sigurði Má fiskifræðingi
Hafrannsóknastofnun og Landbúnaðarsafn Íslands efna til málþings fimmtudaginn 12. mars nk. kl. 13:00 á Hvanneyri. Það er til heiðurs Sigurði Má Einarsyni, fiskifræðingi. Sigurður Már hefur sinnt rannsóknum á ferskvatnsfiskum í rúm 40 ár, en hann hóf störf hjá Veiðimálastofnun árið 1981 samhliða námi. Í júní 1985 tók hann við starfsstöð Veiðimálstofnunnar á Vesturlandi, fyrst með starfsstöð í Borgarnesi en eftir það á Hvanneyri. Helsti starfsvettvangur hans hefur engu að síður verið þær fjölmörgu laxveiðiár sem finna má á Vesturlandi.
Á málþinginu verður farið yfir rannsóknir á ferskvatnsfiskum og samstarf við veiðifélög síðastliðna fjóra áratugi frá starfsstöðinni á Vesturlandi. Einnig verða sérstök erindi um rannsóknir á sjóbleikju í Hvítá í Borgarfirði og um ferðir laxa í sjó.
Málþingið verður haldið í Ársal á Hvanneyri. Að erindum loknum verður boðið upp á spjall og léttar veitingar í Landbúnaðarsafni Íslands í Halldórsfjósi. Þar var síðastliðið sumar sett upp sýning um sögu laxveiða í Borgarfirði sem gestum gefst tækifæri til að skoða.